10.01.2012 21:22
Allt að fara á fullt
Jæja þá fer allt að fara á fullt hjá okkur hér í Torfunesi og mikið af spennandi hrossum komin á hús.
En helstu fréttirnar þessa dagana hjá okkur eru þær að ákveðið var að fara í samstarf við þau Helga Þór Guðjónsson og Oddnýju Láru Guðnadóttur og bjóðum við þau velkomin í sveitina okkar.
Hér munu þau taka í þjálfun og tamningu en einnig mun vera hægt að leita til þeirra vegna reiðkennslu og ýmsu öðru tengt hestamennsku.
Hér er hægt að skoða heimasíðuna hjá þeim Helga og Oddnýju www.hestaland.123.is
Kveðja Torfunes :)
09.01.2012 19:07
Önnur námskeiðshelgi að baki
Jæja þá er önnur helgi af fjórum á námskeiðinu hjá Metta búin.
Í þetta skipti var deginum skipt upp þannig að fyrir hádegi fengu allir 20 mín einkakennslu þar sem farið var yfir hvern hest og smellti Mette sér á flesta hestana. Eftir það var tekinn léttur hádegismatur áður en farið var í rúmlega klukkutíma langa sýnikennslu þar sem farið var yfir hvernig hesturinn lærir og fleira. Eftir sýnikennsluna voru svo hóptímar og einkatímar eftir því hvað fólk vildi.
Þessi dagur var langur og skemmtilegur og gátum við ekki betur séð en að allir hefðu farið alsælir heim.
Viljum við þakka þeim sem voru með okkur þennan laugardag fyrir frábæran dag og hlökkum til að sjá sem flesta á næstu námskeiðshelgi.
Myndir eru komnar inn á facebook síðuna okkar og koma hér inn á síðuna fljótlega
Kveðja Torfunes

05.01.2012 19:15
Námskeið
Viljum minna á námskeiðið á laugardaginn hjá Metta. Hún ætlar að hitta alla klukkan 9:00 og fara yfir daginn.
Þeir sem ekki eru skráðir á námskeiðið en hafa áhuga á því að fylgjast með kennslu og sýnikennslu hjá Metta geta keypt sig inn. Dagurinn fyrir þá kostar 4.000 kr, innifalið er morgunkaffi og léttur hádegismatur. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að skrá sig annaðhvort í síma 863-9222 hjá Baldvini eða að senda skilaboð í gegnum facebook.
Kveðja Torfunes 
19.12.2011 12:37
Áframhaldandi námskeið hjá Mette
Næsta kennsluhelgi hjá Mette verður laugardaginn 7 janúar. Þeir sem ekki eru skráðir á námskeiðið en hafa áhuga á því að koma og fylgjast með geta keypt sig inn á sýnikennslu hjá Mette og einnig fylgst með öllum kennslustundum þann dag.
Áhugasamir hafi samband í síma 863-9222 hjá Baldvin í Torfunesi
01.12.2011 23:02
Námskeið
Þökkum öllum þeim sem komu á námskeiðið á laugardaginn fyrir frábæran dag og hlökkum til að sjá ykkur í næsta tíma. Settum inn nokkrar myndir undir albúm :)
Kær kveðja Torfunes
21.11.2011 18:24
Námskeið hjá Mette
Hér koma upplýsingar um námskeiðið hjá Metta sem byrjar á laugardaginn 26 nóv.
Mæting hjá öllum er klukkan 09:00 en þá mun Metta skipta fólki í hópa og verður hver hópur í 2x40 mín yfir daginn. Einnig verður sýnikennsla eða bókleg kennsla um daginn. Við mælum með því að fólk horfi á hina hópana þar sem það er heilmikill lærdómur líka.
Dagurinn kostar 10.500kr en innifalið í því verði er kennsla, morgunkaffi og kjötsúpa í hádeginu.
Þeir sem ekki eru skráðir á námskeiðið en hafa áhuga á því að fylgjast með kennslu geta keypt sig inn. Dagurinn fyrir þá kostar 4.000kr, innifalið morgunkaffi og kjötsúpa í hádeginu. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að skrá sig annaðhvort í síma 863-9222 hjá Baldvini eða að senda skilaboð í gegnum facebook síðuna okkar.
Með kærri kveðju
Torfunes
17.11.2011 20:40
Reiðnámskeið með Mette
30.10.2011 17:54
Framhaldsnámskeið með Mette Mannseth
Laugardagana 26.nóvember, 7.janúar, 4.febrúar og 17.mars er ætlunin að halda námskeið með Mette Mannseth.
Verður það haldið í Torfunesi, Suður-Þingeyjarsýslu.
Nánari upplýsingar er að finna hjá Baldvin í Torfunesi í síma 863-9222 eða á torfunes@gmail.com
19.08.2011 21:23
Ný myndbönd
Þið getið einnig smellt hér og þá farið þið beint á myndband af Lausn frá Torfunesi.
02.08.2011 12:41
Blær frá Torfunesi kemur heim
Gjald á fengna hryssu ef 50.000 plús vsk., hagagöngu og sónar.
Áhugasamir hafi samband við Baldvin.

02.08.2011 12:33
Ljósfari frá Torfunesi
Hann er alhliðagengur og með góðri vinnu gæti orðið mjög öflugur keppnishestur. Skeiðið er þó enn lítið þjálfað en er til staðað.
Geðslagið í honum er afskaplega gott og hann er mjög góður í umgengni, þó svo hann sé ógeltur. Til er myndband af honum á síðunni undir Myndbönd.
Áhugasamir hafið endilega samband.

28.07.2011 21:11
Glæsilegur árangur Mette og Elds á Landsmóti 2011
Eldur er nú í Torfunesi og er fullt hjá honum í fyrra gangmáli og mikil ásókn í seinna gangmál.
Eldur og Mette Manseth á Landsmóti 2011
Komið er inn nýtt myndaalbúm með myndum af Eldi en það má skoða hér.
Við óskum eigendum og ekki síst knapa til hamingju með glæsilegan árangur.
28.07.2011 20:59
Blær ásamt afkvæmum á Landsmóti 2011
Blær ásamt afkvæmum á Landsmóti hestamanna 2011.
Blær og Gísli Gíslason
Hér má sjá fleiri myndir frá sýningunni.
21.06.2011 09:40
Folöld
Hér koma nokkrar myndir af folöldum sem fæðst hafa í sumar hér í Torfunesi.
Fyrsta myndin er af hestfolaldi undan Mánadís frá Torfunesi en faðir er Trymbill frá Stóra-Ási.
Þá kemur blesótt hryssa undan Eldingu frá Torfunesi. Faðir er Markús frá Langholtsparti.
Svo er hér skjótt hryssa, móðir er Myrkva frá Torfunesi og faðir er Verdi frá Torfunesi.
Þá er hér rauður hestur, móðir er Fiðla frá Akureyri en faðir er Möttull frá Torfunesi.
Hér er brún hryssa undan Óperu frá Torfunesi. Faðir er Gígjar frá Auðholtshjáleigu.
Að lokum er svo brúnn hestur undan Bylgju frá Torfunesi. Faðir er Karl frá Torfunesi.
Von er á fleiri folöldum í Torfunesi og munum við setja inn myndir eins fljótt og mögulegt er af nýju Torfuneshestunum.
- 1
