21.02.2012 09:48
Fréttir
Nóg er að gera hér í Torfunesi þessa dagana og mikið þjálfað og tamið.
Um helgina var krakkadagur hjá Þjálfa haldinn í Torfunes og gátu allir sem höfðu áhuga á að fara á hestbak komið til okkar. Einng var í boði að koma með sinn eigin hest og nota aðstöðunar hérna hjá okkur. Krakkarnir komu flest með eigin reiðtygi og kenndi Oddný Lára þeim að þrifa þau, svo allir fóru heim með vel pússuð og flott reðtygi.
Gaman er svo að segja frá því að Helgi Þór sem sér um tamningju og þjálfun hér smellti sér á ísmót Gnýfara á Ólafsfjarðarvatni og sigraði það á Berg frá Kolsholti 2 og óskum við honum til hamingju með sigurinn :)
Flettingar í dag: 129
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 166
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 135633
Samtals gestir: 39312
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 21:54:17
