Færslur: 2012 Febrúar

21.02.2012 09:48

Fréttir

Nóg er að gera hér í Torfunesi þessa dagana og mikið þjálfað og tamið.
Um helgina var krakkadagur hjá Þjálfa haldinn í Torfunes og gátu allir sem höfðu áhuga á að fara á hestbak komið til okkar. Einng var í boði að koma með sinn eigin hest og nota aðstöðunar hérna hjá okkur.  Krakkarnir komu flest með eigin reiðtygi og kenndi Oddný Lára þeim að þrifa þau, svo allir fóru heim með vel pússuð og flott reðtygi.
Gaman er svo að segja frá því að Helgi Þór sem sér um tamningju og þjálfun hér smellti sér á ísmót Gnýfara á Ólafsfjarðarvatni og sigraði það á Berg frá Kolsholti 2 og óskum við honum til hamingju með sigurinn :)

10.02.2012 11:16

Prins frá Torfunesi

Prins frá Torfunesi.
Mjög vaxandi foli


Horfa á myndband


10.02.2012 08:49

Myndir

Setti inn nokkrar myndir undir myndaalbúm af þeim Glæðu, Önn Sirkus og Prins


Glæða


Önn frá Ögmundarstöðum IS2006257321

Sirkus frá Torfunes IS2006166204

Prins frá Torfunesi IS2006166202



10.02.2012 08:31

ÖNN

Góðan daginn.


 

Vorum að setja inn myndband af Önn frá Ögmunarstöðum.
Önn frá Ögmundarstöðum Önn er stór og myndarleg klárhryssa í mikilli framför. Hreingeng  og þægileg. Önn er traust og þægileg í umgengni. Viljinn er vaxandi í henni svo hún myndi ekki henta fyrir alveg byrjendur.   Önn er á járnum og í þjálfun núna og hefur t.d verið lánuð á námskeið hjá Mette Moe Mannseth undir 12 stúlku.  Frábært fjölskylduhross og jafnvel keppnishross í barna- og unglingaflokk

01.02.2012 17:09

Námskeið hjá Mette og sýnikennsla

Nú er komið að 3 helginni hjá Metta. Allir sem eru skráðir eiga að mæta klukkan 09:00.

Þeir sem ekki eru skráðir en hafa áhuga á því að koma á sýnikennslu geta mætt klukkan 13:00 og greitt aðeins 1000 krónur fyrir sýnikennsluna.


 

Með kveðju

Torfunes

01.02.2012 15:18

Tamning og þjálfun

Jæja nú er allt komið á fullt hér í Torfunesi og tamningar og þjálfun fer vel af stað.  Húsið er að verða nánast fullt en lengi er pláss fyrir góð hross.

Þau Helgi Þór og Oddný Helga eru búin að koma sér vel fyrir hérna í Torfunesi og farin að þjálfa og temja á fullu. Þau eru með 6 hross í þjálfun og tamningu frá Torfunesi og fljótlega bætast tvær hryssur við sem Helgi ætlar að þjálfa en það eru þær Ástrós  og Bára. Ásamt þessum hrossum eru þau með hross eigin vegum.  Hrossin sem Helgi og Oddný Lára eru með fara vel af stað og  þykja ansi efnileg. Stefnt er með öll þessi hross í sýningar í vor og í keppni í vetur og sumar.  

Baldvin hefur séð þjálfun á nokkrum hrossum sjálfur eins og þeim Sjarm frá Torfunesi  IS2007166204, Gammi frá Torfunesi IS2004166213 og Sirkus frá TorfunesiIS2006166204 og gengur sú þjálfun mjög vel enda allt efnilegt hross.

Einnig hafa nokkur hross verið send annað í þjálfun eins og til þeirra Mette og Gísla, Christina Lund og Árna Björns og Sylvíu

Látum þetta duga í bili en hér fyrir neðan er upptalning á þeim hrossum sem þau Helgi Þór og Oddný Lára eru með frá Torfunesi.

Stefni svo á að koma inn myndum fljótlega

Kveðja Torfunes

 Prins frá Torfunesi IS2006166202

Faðir      Blær frá Torfunesi  

Móðir   Freyja frá Reykjavík

 Mist frá Torfunesi  IS2005266211

Faðir      Sveinn Hvervar frá Þúfu

Móðir   Mánadís frá Torfunesi

Önn frá Ögmundastöðum

 Faðir      Slettir frá Sörlatungu

 Móðir   Tinna frá Ögmundastöðum

Háey frá Torfunesi IS2008266209

 Faðir      Hófur frá Varmalæk

 Móðir   Abbadís frá Torfunesi

 Glæða frá Hryggstekk IS2006276131

 Faðir      Blær frá Torfunesi

 Móðir   Gná frá Bakka

 Húmi frá Torfunesi

 Faðir      Sveinn-Hvervar frá Þúfu

 Móðir   Myrkva frá Torfunesi

  • 1
Flettingar í dag: 129
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 166
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 135633
Samtals gestir: 39312
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 21:54:17