Ræktunarbúið Torfunes


Baldvin Kr. Baldvinsson hafði stundað hrossarækt í nokkur ár þegar hann ákvað ásamt Brynhildi Þráinsdóttur eiginkonu sinni að kaupa jörðina Torfunes í Ljósavatnshreppi fyrir starfsemina. Hrossarækt sem búgrein hefur því verið starfrækt þar frá 1978.
Í upphafi var sú ákvörðun tekin að vera með fá hross og vanda í alla staði til ræktunarinnar. Stefnunni sem í upphafi var mörkuð hefur síðan verið fylgt og er undirstaða gæðanna sem einkenna í dag hestana frá Ræktunarbúinu í Torfunesi

Hæfileikar, fegurð og góð lund


Markmið ræktunarinnar er að ná fram og ala upp fjölhæf og afkastamikil hross. Sérstök áhersla er lögð á gæði tölts og brokks. Í ræktunina eru einungis valdir kostagripir og efnileg vel ættuð unghross. Frá Torfunesi koma hæfileikamikil, samvinnuþýð og traust hross, dugmikil og léttbyggð, svífandi og hreingeng. Góðir ferðafélagar sem ljúft er að ríða um langan veg. Þau hafa staðið sig frábærlega í gæðinga- og íþróttakeppnum og verið framarlega sem kynbótahross. Í Torfunesræktinni eru dökkbrúnir, rauðir með stjörnum í enni, glófextir og rauðblesóttir ráðandi litir. En einnig hvítir og móálóttir. Hrossin frá Torfunesi eru í fremstu röð íslenskra hesta og eru þekkt á meðal hestafólks hér heima og erlendis. Á Landsmótinu 1998 á Melgerðismelum voru t.d 7 hross frá Torfunesi meðal þátttakenda.


Hrossaræktandi frá unga aldri

Áhuginn á hestum hefur alla tíð fylgt Baldvini og tíu ára gamall keypti hann og tamdi fyrstu hryssuna sína. Hún hét Sokka 3069 frá Sólheimagerði.

Baldvin er menntaður búfræðingur frá Hvanneyri og rekur bú sitt ásamt Brynhildi konu sinni sem jafnframt er kennari. Bústofninn samanstendur af hrossum og fé. Baldvin og Brynhildur eiga tvö uppkomin börn og nú eru það barnabörnin sem njóta leiðsagnar afa og ömmu í Torfunesi.
Á löngum ferli í hestamennsku, hefur hann ræktað, alið upp og tamið mörg úrvalshross sem vakið hafa eftirtekt meðal hestafólks og unnið til fjölmargra verðlauna fyrir hæfileika og byggingu.
Baldvin er mikilsvirkur í félagslífi bænda og hestamanna. Hann hefur setið í stjórn ræktunarfélaga og starfað innan bændasamtakanna af margvíslegum málum um árabil.
 
Söngur. Aukabúgrein Baldvins í Torfunesi

Sönglistin hefur í langan tíma verið aukabúgrein Baldvins og hefur hann sungið víða. Lengi söng hann með Baldri bróðir sínum og enn syngja þeir saman af og til við ýmis tækifæri, jafnt í gleði og sorg. Þeir bræður gáfu út hljómplötu með söng sínum við undirleik Úlriks Ólasonar píanóleikara fyrir rúmum áratug. Baldvin hefur á seinni árum sungið meira einn en einnig tekið þátt í óperuuppfærslum á Laugaborg og á Akureyri, nú síðast í Sígaunabaróninum. Baldvin hefur síðustu misseri komið fram sem gestur með Karlakórnum Hreim.

Árið 1996 gaf Baldvin út geisladisk og fékk hann í lið með sér þau Juliet Foulkner píanóleikara, Reyni Jónasson harmonikkuleikara og Símon Kúran fiðluleikara. Um þetta leyti stundaði Baldvin söngnám hjá Jóni Þorsteinssyni óperusöngvara.
Á disknum eru þekkt sönglög frá ýmsum tímum síðustu aldar og er hann meðal annars til sölu í Torfunesi en einnig er hægt að panta hann í póstkröfu, gegnum tölvupóstinn hér á vefsvæðinu.


Ræktunarbúið gert að hlutafélagi

Stofnað hefur verið sérstakt hlutafélag um Ræktunarbúið Torfunes. Markmið þess er að efla og styrkja þá ræktun sem stunduð hefur verið í Torfunesi á undanförnum árum. Árið 2007 komu svo nýjir hluthafar að búinu þegar Karl Wernersson og hjónin Guðmundur Ólason og Bryndís Mjöll Gunnarsdóttir fjárfestu í félaginu.  Í framhaldi af því var ráðist í mikla uppbyggingu á búinu með endurnýjun á hesthúsi og nýrri og glæsilegri reiðhöll. Aðstaða er nú eins og best verður á kosið og enn er unnið að því að gera aðstöðuna enn glæsilegri.

Flettingar í dag: 133
Gestir í dag: 47
Flettingar í gær: 166
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 135637
Samtals gestir: 39314
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 22:15:45

Tenglar

Torfunes

Nafn:

Baldvin Kristinn Baldvinsson

Farsími:

863-9222

Heimilisfang:

Torfunes

Staðsetning:

Þingeyjarsveit

Heimasími:

464-3622