Hrossin okkar

Vel byggð hross með fjölþætta hæfileika

Hrossin frá Torfunesi prýða fremstu raðir íslenskra hesta og eru þekkt um árabil á meðal hestafólks hér heima og erlendis.
Á Landsmótinu 1998 á Melgerðismelum voru t.d 7 hross frá Torfunesi meðal þátttakenda, þar af náðu þrjú í verðlaun.
Á Vindheimamelum 2002 voru 5 hross í keppni og náðu þar 2 í úrslit. Á Hellu 2004 voru Blær og Tangó frá Torfunesi sýndir í kynbótasýningu, Máttur frá Torfunesi á Hellu 2006 og svo Máttur í kynbótasýningu og Blær í A flokki á landsmóti á Hellu 2008. Auk þessa hefur fjöldi hrossa frá Torfunesi komið fram á sýningum og stærri mótum.

Í ræktunina eru einungis valdir kostagripir og efnileg vel ættuð unghross og er sérstök áhersla er lögð á gæði tölts og brokks.
Frá Torfunesi koma örgeðja, þjál en viljamikil, samvinnuþýð og traust hross. Þau eru dugmikil og léttbyggð. Svífandi og hreingeng. Góðir ferðafélagar sem ljúft er að ríða um langan veg. Torfuneshrossin hafa staðið sig frábærlega í gæðinga- og íþróttakeppnum og verið framarlega sem kynbótahross.
Í Torfunesræktinni eru dökkbrúnir, rauðir með stjörnum í enni, glófextir og rauðblesóttir ráðandi litir. En einnig hvítir og móálóttir.

Árlega eru notaðir nokkrir af efnilegustu stóðhestum landsins til að ná fram bestu kostum Torfunessræktunarinnar.
 
Metnaður í ræktuninni er sá að velja hverju sinni þann hest sem ætla má að henti viðkomandi hryssu.ekkert er til sparað.. ferðir þvert yfir landið þess vegna. Framtíðin ein mun segja til um hvort rétt var valið. Stefna búsins er og hefur verið að nota einnig nokkra heimaræktaða hesta. Blær, Máttur og Möttull eru með nokkrar hryssur. Folöldin sem fæðast í sumar eiga eftirtalda stóðhesta sem feður; Svein-Hervar, Hóf frá Varmalæk, Mátt, Blæ, Möttul, Mídas, Gígjar, Adam frá Ásmundarstöðum ofl.

Besti efniviðurinn á að byggja framtíðina
Margir af bestu stóðhestum landsins eru notaðir til undaneldis í Torfunesi. Með þeim hafa fjölþættir kostir Torfuneshrossanna styrkst og það einkennir ný afkvæmi í ræktuninni. Valið er yfirvegað þegar kemur að því að velja réttan stóðhest fyrir hverja hryssu.  Þá er horft til þess, hvernig má ná áfram þeim ræktunaráformum sem eru í heiðri höfð í Torfunesi og skila bestu kostum frá foreldrum til afkvæma.

Í Torfunesi taka aðeins úrvalshryssur þátt í ræktuninni
Ein af grundvallareglum ræktunarinnar er að nota hryssur sem hafa hlotið  1. verðlaunadóma. Stofnhryssur búsins, Toppa 4892 frá Rangá IS1961266242 og Sokka 3069 frá Sólheimagerði lögðu grunninn. Seinna komu inn afkvæmi þeirra og aðrar úrvalshryssur sem þóttu hæfa ræktunarmarkmiðum í Torfunesi.
 
Eldri hryssur ræktunarbúsins sem lagt hafa til afkvæmi fram á síðari ár, hafa verið Kvika frá Rangá IS1974266245 Brynja frá Hafsteinsstöðum IS1985257165  Dís frá Hólum IS1978258303  Ör frá Rangá IS1979266209 Stjarna frá Torfunesi IS1981266008 og Virðing frá Flugumýri IS1982257011. En hún varð efst á FM  á Melgerðismelum 1987 með einkunnina 8,16. Og Hnallþóra frá StykkishólmiIS1976237250. 
Í dag eru ræktunarhryssur Torfunessbúsins Bylgja frá Torfunesi IS1991266201.  Mánadís frá Torfunesi IS1992266205 og Abbadís frá Torfunesi IS1989266208. Hryssur sem hafa hlotið háa viðurkenningar í kynbótadómum.
Af yngri hryssum sem nú eru komnar inn í ræktina eru; Gletta frá Torfunesi IS1995266205 Röst frá Torfunesi IS1998266210. Þær hlutu báðar 1. verðlaun á Landsmótinu 2002 og eru farnar að skila afkvæmum inn í ræktina.
 
  ------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hér getur þú skoðað á aðgengilegan hátt 5 síðustu ræktunarárganga okkar í Torfunesi.  Hrossin úr þessum árgöngum eru að sýna kosti sem vekja með okkur góðar vonir um árangur í framtíðinni.
Nú eru að alast upp á fjórða tug trippa auk efnilegra unghrossa og einhver þeir verða vonandi sýnileg næstu árum, á mótum víðsvegar um landið.
 
Hér gefur að líta árganginn frá sumrinu 2003 en þar eru nokkur efnileg trippi sem gaman verður að fylgjast með sérstaklega í ljósi þess að feðurnir eru margir hverjir í úrvalsdeild yngri stóðhesta sem eru að sanna sig í ræktuninni nú og næstu ár. Biskup frá TorfunesiIS2003166212  Boði frá Torfunesi IS2003166214  Dagrenning frá Torfunesi IS2003266208  Elding frá Torfunesi IS2003266201  Fígaró frá Torfunesi IS2003166200  Framtíð frá Torfunesi IS2003266202  Ganti frá Torfunesi IS2003166213 og Nótt frá Torfunesi IS2003266211.
 
Og sama má segja um árganginn frá sumrinu 2002. Þar eru að mótast miklir efnisgripir sem við bindum vonir við að verði meðal fulltrúa okkar á Landsmótinu 2006. Ábóti frá Torfunesi IS2002166212.  Baugur frá Torfunesi IS2002166207, Bylur frá Torfunesi 2002166214, Draupnir frá Torfunesi IS2002166208,  Fruma frá Torfunesi IS2002266202, Hylling frá Torfunesi IS2002266203, Máttur frá Torfunesi IS2002166211 og Undri frá Torfunesi IS2002166209.
 
Hann var ekki stór árgangurinn frá fyrsta ári nýrrar aldar 2001.
En hann fer væntanlega af stað í frumþjálfun á næsta ári og því þar næsta. Þarna eru nokkur trippi sem lofa mjög góðu. Faldur frá Torfunesi IS2001166214, Hugur frá Torfunesi IS2001166203, Myrkva frá Torfunesi IS2001266211 og Sunna frá Torfunesi IS2001266212.
2000 Aldamótakynslóðin er að koma inn í þjálfunina í vetur og næsta vor ætti að vera ljóst hvaða efnisgripir blanda sér í keppnir sumarsins. Brimar frá Torfunesi IS2000166212, Byr frá Torfunesi IS2000166214, Kvintett frá Torfunesi IS2000166201.

1999 "Yngsta ræktunarkynslóðin" er nú að byrja að láta til sín taka á sýningum og í ræktuninni heima fyrir og víðar. Við bindum vonir við að geta sýnt hestafólki víðsvegar frá, þessa gripi okkar næsta sumar en fyrstu afkvæmi þeirra eru nú að vaxa úr grasi. Blossi frá Torfunesi IS1999166209, Blær frá Torfunesi IS1999166214,  Gellir frá Torfunesi IS1999166213, Sorti frá Torfunesi IS1999166208, Fluga frá Torfunesi IS1999266205 og Tangó frá Torfunesi IS1999166211. 
Folöldin í Torfunesi fá að ganga lengi undir mæðrum sínum og njóta því frá upphafi góðs atlætis og mikillar gjafar. Baldvin byrjar að vinna með hrossin mjög ung. Þau eru snemma gerð bandvön og þjálfuð í taumhring sem gerir árangur tamningatímans meiri. Hrossin eru bráðger, taka snemma út þroska og flest þeirra eru spök. Öll afkvæmi á búinu eru örmerkt.

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 154
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 114203
Samtals gestir: 34068
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 00:34:51

Tenglar

Torfunes

Nafn:

Baldvin Kristinn Baldvinsson

Farsími:

863-9222

Heimilisfang:

Torfunes

Staðsetning:

Þingeyjarsveit

Heimasími:

464-3622